breyting á deiliskipulagi
Hólavað 63-71
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 629
28. apríl, 2017
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kjartans Hrafns Kjartanssonar dags. 31. janúar 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna raðhúss á lóðum að Hólavaði 63-71. Í breytingunni felst breyting á byggingarmagni/nýtingarhlutfalli, m.a. að bæta við kvist og hækka hús, samkv. uppdrætti Krark., dags. 8. febrúar 2017. Tillagan var auglýst frá 1. mats til og með 24 apríl 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðni Þór Sigurjónsson, dags. 20. apríl 2017 og 8 íbúar að Hólavaði 45-61, mótt. 23. apríl 2017.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.