breyting á deiliskipulagi
Fossháls 13-15
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 843
28. október, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. október 2021 var lögð fram umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar dags. 1. október 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 13-15 við Fossháls. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit lóðarinnar fyrir einnar hæðar viðbyggingu. Um er að ræða lagerhúsnæði við austurhluta lóðarinnar. Kjallari verður undir viðbyggingunni og bætt verður við innkeyrslu á lóð vegna aðgengi að kjallara, samkvæmt uppdr. K.J. ARK elf. dags. 28. september 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Fosshálsi 11 og Draghálsi 14 og 16.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111026 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001482