Mánatún 1- Breytingar BN049895 - glerskáli 07.01
Sóltún 1 - mhl.04
Síðast Synjað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 567
18. desember, 2015
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 23. október 2015 var lögð fram umsókn Þorkels Magnússonar, mótt. 24. september 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Bílanaustsreits vegna lóðarinnar nr. 1 við Sóltún. Í breytingunni felst að byggingarmagn á lóð íbúðarhúsnæðis (syðri lóð) breytist þ.a. bílgeymsla neðanjarðar minnkar en annað rými neðanjarðar stækkar samsvarandi, samkvæmt tillögu Kanon arkitekta ehf. dags. 19. október 2015. Einnig er lögð fram yfirlýsing um eignarhald á byggingarrétti, dags. 28. janúar 2008 og bréf byggingarréttshafa þ.e. Mánatún hf., Dverghamra ehf. og Sóltún 1 ehf. , dags. 16. október 2015. Erindinu var vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 18. desember 2015.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.