breyting á deiliskipulagi
Láland 16
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 881
25. ágúst, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Kurt og Pí ehf. dags. 30. mars 2022 um breytingu á deiliskipulagi Fossvogshverfis vegna lóðarinnar nr. 16 við Láland. Í breytingunni sem lögð er fram felst stækkun á byggingarreit til austurs, samkvæmt uppdr. Kurt og Pí ehf. dags. 16. mars 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt samþykki meðlóðarhafa dags. 15. júní 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 15. júlí 2022 til og með 15. ágúst 2022. Engar athugasemdir bárust. Einnig eru lagðar fram ábendingar Veitna dags. 2. ágúst 2022. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. ágúst 2022 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108835 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014908