Fjölbýlishús - hækkun húsa
Laugavegur 35
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 830
21. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. júní 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja og hækka eldri hús að götu um eina hæð, byggja á baklóð fjögurra hæða fjölbýlishús úr forsteyptum einingum með 34 íbúðum, atvinnurýmum á jarðhæð og kjallara með geymslum og bílastæðum fyrir 6 bíla með aðkomu frá Vatnsstíg, á lóð nr. 35 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2021.
Erindi fylgir umboð til hönnuðar dags. 28. janúar 2021. Stærð, A-rými: 2.718,6 ferm., 8.342,4 rúmm. B-rými: xx ferm. Gjald kr. 12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. júlí 2021, samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101453 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017546