Svalir 2.hæð - gluggar síkkaðir - stigagangur
Öldugata 47
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 856
11. febrúar, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. febrúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að gera svalir á suðurhlið íbúðar 0201, síkka glugga til að koma fyrir tvöfaldri svalahurð og setja á létta veggi undir svalir til að skýla aðalinngangi íbúðar 0101 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 47 við Öldugötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda í húsi nr. 47 og aðliggjandi lóðarhafa að Öldugötu 45 og Brekkustíg 15 á afriti af innlögðum teikningum og A3 afrit af aðaluppdráttum stimpluðum 20. mars 2018. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. desember 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100382 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017058