Breytingar inni - Gististaður fl.2 teg.g 3-5 hæð
Laugavegur 105
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 856
11. febrúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. nóvember 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. október 2021 þar sem sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi 1.-5. hæða og kjallara. Í kjallara er komið fyrir geymslum fyrir allar íbúðir auk þvottahúss, á 1. hæð er komið fyrir hjólageymslu, sorpgeymslan er færð og gluggagat síkkað á suðausturhlið til að koma fyrir hurð inn í nýja sorpgeymslu, á 2. hæð er íbúðum fækkað úr 11 í 8, á 3.-5. hæð er komið fyrir 35 íbúðum ætlaðar undir rekstur á gististað í flokki II tegund g í húsi á lóð nr. 105 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2021. Erindið er lagt fram að nýju ásamt uppdrætti Arkþings/Nordic dags 10. febrúar 2022 og greinargerð, m.a. er nú reiknað með 28 íbúðum á 3.-6.hæð. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2022 .
Stærð er: Óbreytt. Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afritum aðaluppdrátta samþykktir þann 7. október 2014. Gjald kr.12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. febrúar 2022 samþykkt.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102974 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018235