breyting á deiliskipulagi
Guðríðarstígur 6-8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 862
25. mars, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn frá Arkitektar Laugavegi 164 ehf. dags. 6. september 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grafarholts, athafnasvæðis, vegna lóðarinnar nr. 6-8 við Guðríðarstíg. Í breytingunni felst að byggingarreitur hússins stækkar til suðvesturs þannig að hægt verði að byggja við húsið. Hluti viðbyggingar verður á þremur hæðum en stærsti hlutinn á einni hæð. Stækkunin nýtist fyrir skrifstofustarfsemi og lager. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall og byggingarmagn eykst, samkvæmt uppdr. Glámu Kím arkitekta dags. 6. september 2021. Tillagan var auglýst frá 9. febrúar 2022 til og með 23. mars 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

113 Reykjavík
Landnúmer: 188025 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001050