breyting á deiliskipulagi
Seljavegur 3A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 855
4. febrúar, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Jóns Grétars Ólafssonar f.h. eiganda dags. 28. júlí 2021, varðandi breytingu á deiliskipulagi Framnesreits vegna lóðarinnar nr. 3A við Seljaveg. Í breytingunni felst að heimilt er að setja utanáliggjandi svalir á íbúðir húseignar, samkvæmt uppdr. joni-arkitekta dags. 20. desember 2021. Erindi var grenndarkynnt frá 5. janúar 2022 til og með 2. febrúar 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100246 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015127