breyting á deiliskipulagi
Austurstræti 17
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 862
25. mars, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Eikar fasteignafélags hf. dags. 3. mars 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 17 við Austurstræti. Í breytingunni felst að heimilt er að vera með flóttastiga á norðurhlið hússins, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Traðar dags. 28. febrúar 2022.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hafnarstræti 16 og 18, Lækjartorgi 1 og Pósthússtræti 3 og 5.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100841 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007459