breyting á deiliskipulagi
Háaleitisbraut 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 863
1. apríl, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. mars 2022 var lögð fram umsókn Ragnars Auðuns Birgissonar dags. 11. ágúst 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Háaleitisbraut 1. Í breytingunni felst að í stað skrifstofuhúsnæðis í suðaustur hluta lóðarinnar kemur nýtt íbúðarhús með 27 íbúðum. Íbúðir á reitnum verða því samtals 74. Bíla- og hjólastæðakröfur breytast m.t.t. fjölda íbúða og núverandi byggingar, Valhallar, en skilgreiningar per íbúð/fm. helst óbreytt ásamt því að byggingarmagn eykst óverulega, samkvæmt uppdr. THG arkitekta dags. 26. júlí 2021, br. 18. nóvember 2021. Einnig lagt fram bréf Heimis Snæs Guðmundssonar starfsmanns íbúaráða dags. 23. mars 2022 þar sem komið er á framfæri ósk íbúaráðs Miðborgar og Hlíða um að fá aðgang að samgöngumati vegna breytingarinnar. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. apríl 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. apríl 2022 samþykkt.