ósk um umsögn vegna starfsleyfis
Álfsnes
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 781
10. júlí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. júlí 2020 var lögð fram umsókn Björgunar dags. 1. júlí 2020 ásamt greinargerð og uppdráttum dags. 29. júní 2020 um framkvæmdaleyfi vegna gerð nýrrar lóðar fyrir starfsemi Björgunar ehf. að Álfsnesvík. Einnig er lögð fram matsskýrsla Alta dags. 19. desember 2019 um mat á umhverfisáhrifum og álit Skipulagsstofnunar dags. 6. mars 2020 um mat á umhverfisáhrifum. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. júlí 2020.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. júlí 2020. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.