framkvæmdaleyfi
Kjalarnes, Norðurkot
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 864
1. apríl, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. febrúar 2022 var lögð fram umsókn Sigurbjörns Hjaltasonar dags. 25. janúar 2022 ásamt bréfi dags. 1. desember 2021 um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Bugamel í landi Norðurkots á Kjalarnesi. Einnig er lagt fram bréf umsækjanda til Skipulagsstofnunar dags. 5. janúar 2021, ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu dags. 18. febrúar 2021, yfirlitsmynd yfir efnistökusvæði ódags og hluti úr sveitarfélagsuppdrætti Aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. apríl 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. apríl 2022, samþykkt.