breyting á deiliskipulagi
Kjalarnes, Sætún 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 813
19. mars, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. mars 2021 var lögð fram umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sætúns 1 á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Sætúns 1 er breytt, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, þannig að skipulagsmörk sem snúa að Vesturlandsvegi færast í lóðarmörk milli svæðis F annars vegar og hins vegar svæða A og B, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 4. mars 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.