framkvæmdaleyfi
Kjalarnes, Esjuhlíðar
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 832
13. ágúst, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. ágúst 2021 var lögð fram umsókn Skógræktarfélags Reykjavíkur, dags. 24. júní 2021, um framkvæmdaleyfi vegna lokafrágangs á tengistíg í Esju, samkvæmt uppdrætti Eflu dags. 5. maí 2021. Einnig er lagðar fram tvær umsóknir Skógræktarfélags Reykjavíkurborgar til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða 2021 og tillaga Eflu að æfingasvæði Skógræktarfélags Reykjavíkur við Esjurætur. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2021.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2021. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020.