framkvæmdaleyfi
Álfsnes, Sorpa
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 694
17. ágúst, 2018
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja gas- og jarðgerðarstöð, steinsteypt með límtrésburðarvirki, klætt hálfgagnsæju báruplasti og samanstendur af verksmiðjuhluta sem í er fræðslusetur og tveimur meltutönkum auk gastanks á lóð nr. 21 við Víðinesveg.
Erindi fylgir: Greinargerð með deiliskipulagi dags. 26. janúar 2015, skýrsla um brunahönnun dags. 11. júlí 2018, hljóðvistargreinargerð dags. 12. júlí 2018, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2018, ákvörðun um matsskyldu frá skipulagsstofnun dags. 9. mars 2018, greinargerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða dags. 13. júlí 2018 og umsögn heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 9. febrúar 2018. Stærð, mhl. 01: 12.294,7 ferm., 73.987,3 rúmm. Mhl. 02: 201,1 ferm., 3.477,2 rúmm. Mhl. 03: 201,1 ferm., 3.477,2 rúmm. Mhl. 04: 110,8 ferm., 1.134,2 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.