breyting á deiliskipulagi vegna Kalksléttu 1 og Koparsléttu 22
Kjalarnes, Esjumelar-Varmadalur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 889
20. október, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 12. október 2022 þar sem fram kemur að stofnunin getur ekki tekið afstöðu til deiliskipulagsbreytingarinnar vegna eftirfarandi: Þar sem verið er að breyta skilgreiningu á lóð úr athafnasvæði í iðnaðarsvæði þarf í deiliskipulagsbreytingu að gera grein fyrir umhverfismati sbr. ákvæði aðalskipulags fyrir svæði AT5a. Ekki er ljóst hvaða skilmálar munu gilda fyrir lóðina þar sem engin lóð í núgildandi deiliskipulagi Esjumela (m.s.br) hefur staðheitið Kalkslétta 1. Í deiliskipulagsbreytingunni þarf að vera ljóst hvaða skilmálar gilda um lóðina í heild sinni. Að lokum bendir stofnunin á að miðað við nýtingarhlutfall 0,2 virðist sem núþegar hafi allar byggingarheimildir verið fullnýrrar (sbr. upplýsingar í þjóðskrá um stærðir bygginga).
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.