minnkun lóðar og stofnun nýrra lóða
Kollagrund 2, Klébergsskóli
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 813
19. mars, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. mars 2021 var lögð fram umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðar Klébergsskóla á Kjalarnesi, Kollagrund 2. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Klébergsskóla er breytt, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, þannig að skipulagsmörk sem snúa að vesturlandsvegi færast í átt að skólanum um u.þ.b. 5 metra, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 8. mars 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.