nýtt deiliskipulag
Kjalarnes, Prestshús
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 881
25. ágúst, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Plúsarkitekta ehf. dags. 6. apríl 2021 um nýtt deiliskipulag fyrir Prestshús að Kjalarnesi. Í tillögunni sem lögð er til felst uppbygging Presthúsa til fastrar búsetu, samhliða því að byggja upp dvalar- og vinnuaðstöðu fyrir listafólk og áhugafólk um listir og náttúru. Byggð verða upp innan jarðarinnar íbúðarhús, vinnustofur og gestahús ásamt fjölnota sal á svæðinu. Staðsettur verður aðkomuvegur, gönguleiðir byggingarreitur og settir skilmálar fyrir uppbyggingu innan fyrirhugaðs svæðis í samræmi við lög og reglur þar að lútandi, samkvæmt uppdr. Eflu dags. 4. apríl 2022. Tillagan var auglýst frá 6. júlí 2022 til og með 17. ágúst 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Libra lögmenn f.h. Bjarna Pálssonar dags. 28. júlí 2022. Einnig er lögð fram umsögn Veitna dags. 10. ágúst 2022.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.