stækkun spildunnar Skarðarás og breyting á nýtingu lóðar
Kjalarnes, Saurbær
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 754
6. desember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. nóvember 2019 var lagt fram bréf Birgis Arnar Guðmundssonar hdl. f.h. Steins Björgvins Jónssonar og Höllu Margrétar Óskarsdóttur dags. 19. júní 2018 um stækkun spildunnar Skarðarás í landi Saurbæjar á Kjalarnesi ásamt breytingu á nýtingu lóðar úr lóð fyrir aðveitustöð í lóð til íbúðar, samkvæmt uppdr. K.J. Ark teiknistofu dags. 15. nóvember 2019. Einnig er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 7. júní 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2019.
Svar

Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á lóðarmörkum varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags.4. desember 2019.