breyting á deiliskipulagi
Kjalarnes, Skrauthólar 4
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 848
3. desember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. nóvember 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. nóvember 2021 þar sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem matshlutar 01, 02, 03, 04, 06, 08 og 09 eru sameinaðir og verða matshluti 01 sem er þjónusta við tjaldsvæði á 1. hæð, með sal fyrir 240 gesti og íbúð á 2. hæð, auk þess sem gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum þar sem mhl. 07, sem var fjárhús, er breytt í einbýlishús, með nýjum svölum, á húsi á lóð nr. 4 við Skrauthóla. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. desember 2021.
Gjald kr. 12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. desember 2021 samþykkt.