framkvæmdaleyfi
Sjómannaskólareitur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 863
1. apríl, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 28. mars 2022 um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar á núverandi fráveitulögnum framan við gamla Sjómannaskólann og fullnaðarfrágangi á nýjum fráveitu-, vatns- og hitaveitulögnum sem tengjast núverandi kerfi í Nóatúni annars vegar og Vatnsholti hins vegar. Einnig er lagt fram teikningasett VSÓ ráðgjafar dags. í júlí 2021 ásamt og útboðs- og verklýsingu dags. í júlí 2021.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.