framkvæmdaleyfi
Sjómannaskólareitur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 866
29. apríl, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. apríl 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 28. mars 2022 um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar á núverandi fráveitulögnum framan við gamla Sjómannaskólann og fullnaðarfrágangi á nýjum fráveitu-, vatns- og hitaveitulögnum sem tengjast núverandi kerfi í Nóatúni annars vegar og Vatnsholti hins vegar. Einnig er lagt fram teikningasett VSÓ ráðgjafar dags. í júlí 2021 ásamt og útboðs- og verklýsingu dags. í júlí 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. apríl 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 29. apríl 2022. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.