Áður gerð íbúð, nýjar svalir á þakhæð
Búðagerði 9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 694
17. ágúst, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi til að gera stálsvalir á rishæð, breyta innra skipulagi í stigahúsi og fá samþykkta áður gerða íbúð í risi fjölbýlishúss á lóð nr. 9 við Búðagerði.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 17. apríl 2018. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. maí 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2018. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Búðagerði 1,3,4,5,6,7,10 og 12, Hlíðargerði 1 og Sogavegi 72 þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir með vísan í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2018.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107921 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008029