Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 874
23. júní, 2022
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2022 var lögð fram umsókn Hildar Gunnlaugsdóttur, f.h. Spildu ehf. dags. 4. maí 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi áfanga 1 í Gufunesi vegna reita A3 og A4. Í breytingu felst tilfærsla á lóðarmörkum (fjöldi og lögun lóða er að breytast), aukning á fjölda íbúða, húshæðir aukast en þó innan marka sem tilgreint er í aðalskipulagi. Heildarbyggingamagn á svæðinu helst óbreytt m.v. gildandi heimildir og mun byggðarmynstur á uppbyggingarsvæði breytast, í stað randbyggðar, standa stakstæð hús í grænu garðrými. Almennings- og dvalarrými eykst og það gert samfelldara, m.a. með því að fella niður botnlangann Hilmisbás. Töluverð atvinnustarfsemi er í gildandi skipulagi og mun nær öll sú starfsemi í núverandi heimildum breytast í íbúðir, samkvæmt uppdr. dags. 30. maí 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1551/2021.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211