Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 821
21. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. mars 2021 var lagt fram erindi skrifstofu borgarstjóra og borgarritara dags. 8. mars 2021 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa vegna erindis Ragnheiðar Arnardóttur dags. 7. mars 2021 um að reka hundahótel að Norðurgrafarvegu 1 á Esjumelum, Kjalarnesi. Einnig eru lagðar fram teikningar með útskýringum ódags., þrívíddarmyndir og umsögn Guðfinnu Kristinsdóttur forstjóra Dýrfinnu, stjórnanda hundasamfélagsins og stjórnarmeðlim í Félagi Ábyrgðra Hundaeigenda og Dýraverndarsambands Íslands ódags. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 26. mars 2021, álits Matvælastofnunar dags. 12. apríl 2021, umsögn Matvælastofnunar dags. 12. maí 2021 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. maí 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. maí 2021 samþykkt.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211