Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 818
30. apríl, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. apríl 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að grafa frá suðurhlið bílskúrs og breyta honum í vinnustofu, gera nýja glugga og hurðir, fjarlægja milligólf og breyta innra skipulagi, einnig er handrið á svölum íbúðarhúss hækkuð til samræmis við byggingareglugerð og hurðarop út á svalir fyrstu hæðar stækkað og hurð breytt í rennihurð í einbýlishúsi á lóð nr. 14 við Kleifarveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2021.
Gjald kr. 12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2021 samþykkt.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211