Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Ævars Rafns Björnssonar dags. 11. febrúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 1 við Rökkvatjörn. Í breytingunni felst að hæð húsa hækkar vegna aukinnar salarhæðar fyrir verslun og þjónusturými, íbúðum og bílastæðum fjölgað, stærð svala út fyrir byggingarreit stækkuð, heimild til að flytja byggingarmagn milli húsa innan lóðarinnar og fallið er frá kröfu um fjölda arkitekta á byggingum á lóðinni, samkvæmt tillögu Teiknistofunnar Traðar ehf. dags. 12. febrúar 2020. Einnig er lögð fram tillaga/skýringarmyndir Teiknistofunnar Traðar ehf. dags. 12. febrúar 2020.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211