Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 737
19. júlí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. júní 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. júní 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054285 þannig að m.a. verði bætt við gluggum í eldhúsum tveggja íbúða og aðkomudyrum efstu íbúða fjölgað út á afgirt þaksvæði með öryggishandriðum, gluggar færðir til í eldhúsum nokkurra íbúða, skilveggjum á svölum og innveggjaþykktum breytt sem og gluggar í tveimur hjónaherbergjum fjarlægðir í húsi á lóð nr. 103a við Hraunbæ. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 19. júlí 2019.
Erindi fylgir minnkað afrit af teikningum hönnuða með afmörkun á umbeðnum breytingum og bréf hönnuðar dags. 24. júní 2019. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. júlí 2019 samþykkt.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211