Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 506
28. ágúst, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. júlí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir verkfærageymslum sem verða óeinangraðar og óupphitaðar úr timbri, klæddar timbri með bárujárnsþökum á steyptum sökkuleiningum, á lóð nr. 9 við Stjörnugróf Bjarkarás. Erindi var grenndarkynnt frá 28. júlí til og með 25. ágúst 2014. Engar athugasemdir bárust.
Stærð verkfærageymslu A er: 8,7 ferm., 23,0 rúmm. Stærð verkfærageymslu B er: 27,0 ferm., 74,5 rúmm. Samtals: 35,7 ferm., 97,2 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211