Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 826
25. júní, 2021
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. júní 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði með því að gera 5 nýjar íbúðir og koma fyrir svölum í vesturhluta 2. hæðar í atvinnu- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 4 við Hraunberg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir A3 afrit af samþykktum teikningum með stimpli byggingarfulltrúa dags 14. janúar 2003. Gjald kr. 12.100
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.
Vakin er athygli á að auglýsing um gildistöku breytingar á deiliskipulagi vegna lóðarinnar mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda þann 1. júlí nk.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211