Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 481
28. febrúar, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 3. janúar 2014 var lagt fram bréf íþrótta- og tómstundasviðs dags. 13. desember 2013 vegna svohljóðandi samþykktar íþrótta- og tómstundaráðs s.d.: "Íþrótta- og tómstundaráð þakkar starfshópi ÍTR, ÍBR og tennisdeildanna fyrir mikla og góða vinnu við skýrslu um aðstöðumál tennisíþróttarinnar í Reykjavík.
Íþrótta - og tómstundaráð telur að á grundvelli skýrslunnar geti borgaryfirvöld mótað framtíðarstefnu í gerð mannvirkja fyrir tennisíþróttina bæði fyrir afreksfólk og til æfingar í einstökum hverfum.
Íþrótta- og tómstundaráð óskar eftir því að umhverfis- og skipulagssvið leggi mat á þær tillögur sem snúa að tennisvöllum í Laugardal og Fossvogi og tennishúsi við hlið mannvirkja TBR.
Óskað er eftir að matið taki til bæði skipulagsforsendna og kostnaðar við framkvæmdir og rekstur og að ráðið fái greinargerð frá USK um málið fyrir 1. febrúar nk.
ÍTR verði falið að ræða við eigendur Egilshallar um tennisvelli við Egilshöll." Einnig er lögð fram skýrsla starfshóps dags. 18. desember 2013. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2014.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2014 samþykkt.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211