Stöðuleyfi - gámur
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 892
10. nóvember, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. október 2022 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 21. október 2022 þar sem fram kemur að stofnunin getur ekki tekið afstöðu til efnis deiliskipulagsbreytingarinnar þar sem eftirfarandi upplýsingar vantar eða þarf að gera betur grein fyrir: Í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 er svæðið skilgreint sem miðsvæði M24. Gera þarf grein fyrir samræmi breytingarinnar við Aðalskipulag Reykjavíkur 2040, hvað varðar blöndun byggðar þar sem verið er að minnka hlutfall atvinnustarfsemi á miðsvæði og breyta í hreint íbúðarsvæði. Í greinargerð þarf að rökstyðja og gera grein fyrir forsendum breytingarinnar og samráði við hagsmunaaðila. Gera þarf grein fyrir hvernig almennum markmiðum deiliskipulagsins verði náð hvað varðar uppbyggingu verslunar og þjónustu fyrir svæðið í heild sinni og setja í samengi við fyrirhugaða uppbyggingu á minnkuðu A svæði skv. deiliskipulaginu. Gera þarf grein fyrir fyrirhuguðum fjölda íbúða, eða fjölgun íbúða á svæðinu en heimildir eru fyrir 250-300 íbúðum í gildandi deiliskipulagi. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2022.
Svar

Lagt fram bréf skipulagsfulltrúa til Skipulagsstofnunar, dags. 10. nóvember 2022.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020211