Breytingar - BN048979
Arnarhlíð 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1090
10. nóvember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048979 þannig að innréttingum í íbúðum á svalagöngum hefur verið breytt, niðurföll í hjólageymslum felld út, yfirborð þaksvala er breytt og brunahönnun uppfærð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Arnarhlíð.
Erindi fylgir yfirlit yfir breytingar og uppfærð brunahönnun dags. 26. október 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.