50-52 - Breyting á BN057453
Urðarbrunnur 50
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1087
20. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN057453 þannig að gólfkóti rýma 0105 og 0108 er hækkaður til samræmis við gólfkóta 1. hæðar, hurð að rými 108 er færð á norðuhlið þar sem gluggum fækkar og land aðlagað breyttum kótum auk þess sem staðsetning og stærð reyklúgu yfir stigahúsi er breytt í íbúðahúsi nr. 50-52 á lóð nr. 50 við Iðunnarbrunn.
Minnkun: 9.6 rúmmetrar.
Erindi fylgir A3 afrit teikninga með yfirliti breytinga dags 9. mars 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

113 Reykjavík
Landnúmer: 205791 → skrá.is
Hnitnúmer: 10095719