Fjölbýlishús - mhl.06
Tangabryggja 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1087
20. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja 13 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum, mhl.06, á lóð nr. 5 við Tangabryggju.
Stærðir: 1.086.6 ferm., 3317.7 rúmm.
Erindi fylgja varmatapsútreikningar dags. 5. október 2020, mæliblað 4.022.5 dags 18. júní 2020 og óútgefið hæðablað í vinnslu hjá verkfræðistofunni Verkís dags. 26. mars 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

110 Reykjavík
Landnúmer: 228395 → skrá.is
Hnitnúmer: 10131412