Breytt klæðning - Br. á BN052684
Sogavegur 73-75
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1086
6. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052684 þannig að lerkiklæðningu er skipt út fyrir báruklæðningu á austur- og norðurhlið húss nr. 73-75 við Sogaveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á afriti af teikningum samþ. 12. júní 2018 og samþykki eiganda dags. 2. október 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107823 → skrá.is
Hnitnúmer: 10067588