Breyting - BN054742
Arkarvogur 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1087
20. október, 2020
Samþykkt
58266
58170 ›
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054742, um er að ræða ýmsar breytingar á innra skipulagi og útliti s.s. breyting á formi svala endaíbúða og stækkun á öðrum, gluggasetningu þakhæða, fyrirkomulagi sumra eldhúsa, bætt við lagnasköktum, nýtt tæknirými í kjallara og fyrirkomulag geymslna breytt í kjallara fjölbýlishúsa á lóð nr. 2 við Arkarvog.
Jafnframt er erindi BN058096 dregið til baka.
Stærð óbreytt.
Erindi fylgir yfirlit breytinga og bréf hönnuðar dags. 29. september og 15. október 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.