Breyting á Bn056841
Klausturstígur 1-11
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1087
20. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN056841 þannig að einangrunarþykkt útveggja, gólfkótum og uppbyggingu innveggja er breytt, einnig er matshlutanúmerum breytt (mhl. 08 til 14), í samræmi við lóðasamning, fyrir húsin á lóð nr. 1-11 við Klausturstíg (Klaustur- og Kapellustígur).
Erindi fylgir bréf hönnuðar um yfirlit breytinga, dags. 21. september 2020, viðauki vegna algildrar hönnunar dags. 7. október 2020 og varmatapsútreikningar dags. 21. september 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.