Breytingar - BN057251
Stefnisvogur 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1081
1. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN057251 sem felst í að breyta stærðum tveggja íbúða og fjögurra geymslna, hliðra til gluggum og breyta burðarveggjum í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Stefnisvog.
Erindi fylgir yfirlit breytinga og afrit af samþykktum aðalteikningum.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 227883 → skrá.is
Hnitnúmer: 10129222