Viðbygging og breyta núverandi sambýli í fimm íbúðir.
Tindasel 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1086
6. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri og breyta innra skipulagi núverandi húss þannig að sambýlið breytist úr 5 herbergjum í 5 íbúðir og starfsmannaaðstöðu í húsi á lóð nr. 1 við Tindasel.
Erindi fylgir hæða- og mæliblað og afrit af teikningum samþykkt 30. júlí 1992, útreikningar hönnuðar á varmatapi dags. 11. ágúst 2020, bréf hönnuðar dags. 10. ágúst 2020, bréf Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar dags. 14. júlí 2020 og afrit af auglýsingu um breytt deiliskipulag dags. 22. janúar 2020.
Stækkun: 133,6 ferm., 568,4 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

109 Reykjavík
Landnúmer: 112896 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023567