Breytingar innannhúss
Vatnagarðar 24
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1087
20. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingu sem felast í að bílastæði við inngang eru færð, gert er grein fyrir vindfangi við aðalinngang og nýrri snyrtingu, auk þess sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi, setja upp millivegg sem skilur að sýningarsal og afgreiðslu, gera nýja hurð á milli brunahólfa, koma fyrir nýju tæknirými, breyta fyrirkomulagi aðstöðu starfsmanna og uppfæra brunavarnir í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 24 við Vatnagarða.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 7. júlí 2020.
Stækkun vegna vindfangs: 5,5 ferm og 40,3 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

104 Reykjavík
Landnúmer: 103924 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025358