Breyting inni 0101, 0105, 0106 og 0004 o.fl.
Tindasel 3 49.34.103
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Gestur Ólafur Auðunsson
Byggingarfulltrúi nr. 1079
18. ágúst, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi rýma 0101, 0105 og 0106 þannig að komið er fyrir salernum, tveimur útgönguhurðum og stiga milli rýma 0106 og 0006 og skipta rýmunum úr einni eign í þrjár, í húsi á lóð nr. 3 við Tindasel.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 1. júlí 2020, samþykki meðeigenda ódags og bréf aðalhönnuðar dags. 16. júlí 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. júlí 2020 fylgir erindi, ásamt tölvupósti byggingarfulltrúa dags. 17. júlí 2020 þar sem umsagnarbeiðni er dregin til baka. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 20. júlí 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

109 Reykjavík
Landnúmer: 112898 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023571