Námsmannaíbúðir
Bólstaðarhlíð 23 12.71.705
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1072
16. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja þrjú steinsteypt fjölbýlishús á 2-3 hæðum auk rishæðar og kjallara, með 50 íbúðum fyrir námsmenn sem verður mhl. 02 á lóð nr. 23 við Bólstaðarhlíð.
Stærð, A-rými: 3.216,2 ferm., 9.979,3 rúmm.
B-rými: 191 ferm.
Samtals: 3.407 ferm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 177192 → skrá.is
Hnitnúmer: 10072395