Breytingar BN053223 - mhl.01, 02, 03, 04
Efstaleiti 11 17.45.301
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1072
16. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindum BN053223 og BN053226, m. a. minni háttar breytingar í kjallara, klæðningu og gluggum og tilfærsla á djúpgámum í og við fjölbýlishúsin Efstaleiti 11, 13, 15 og 17, Vörðuleiti 1 og Lágaleiti 11, 13 og 15, mhl.01, 02, 03 og mhl.04, á lóð nr. 11 við Efstaleiti.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

103 Reykjavík
Landnúmer: 224637 → skrá.is
Hnitnúmer: 10117764