Viðbygging - breyting 2. hæð
Grensásvegur 22 18.01.215
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1082
8. september, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi á 2. hæð og bæta við glugga til austurs, og byggja einnar hæða viðbyggingu, gangrými, sem tengir saman hús á lóðum nr. 24 - 26 við skrifstofu- og verslunarhús á lóð nr. 22 við Grensásveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. júlí 2020 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2020.
Erindi fylgir samþykki eigenda húss nr. 22-26, dags. 11. maí 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. september 2020 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2020.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Grensásvegi 24 og 26. Lagt var fram samþykki eiganda Grensásvegs 24 og 26, dags. 11. maí 2020.
Stækkun: 16.1 ferm., 46.4 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107636 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011532