Breytingar á erindi BN054900
Hólmgarður 34 01.81.830.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1079
18. ágúst, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN054900, þannig að á jarðhæð austurhluta verður komið fyrir þremur íbúðum og þremur verslunarbilum, geymslum í bakhúsi, mhl. 04, er fjölgað úr tíu í sautján, í húsi á lóð nr. 34 við Hólmgarði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2020. Erindið BN057031 er dregið til baka með tölvupósti frá hönnuði dags. 11. júní 2020.
Samþykki frá meðeignada húss á A3 teikningum ódags.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108218 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019686