Fjölbýlishús
Grensásvegur 1 14.60.001
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1072
16. júní, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja 5 hæða fjölbýlishús, hús A, með 50 íbúðum, tveimur stigahúsum, geymslu- og bílakjallara, það fyrsta af fjórum nýbyggingum á lóð nr. 1 við Grensásveg.
Stærðir með kjallara: 8.585.9 ferm., 28.200.9 rúmm.
Erindi fylgja ódagsett drög að breyttu mæliblaði 1.460, hæðablað teiknað í febrúar 2004 og hljóðvistarskýrsla Mannvits ehf dags. 15. mars 2019, ódagsett bréf umsækjanda og greinargerð arkitekta dags. 26. apríl 2020.
Gjald: 11.200 kr.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 105655 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011519