45 - Viðbygging
Frostaskjól 39-45 01.51.510.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Guðrún Marta Jóhannsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1075
7. júlí, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta, einnar hæðar viðbygginu við vesturhlið raðhúss nr. 45 (mhl. 04) á lóð nr. 39-45 við Frostaskjól.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 30. mars 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. apríl 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. júlí 2020 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2020. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Frostaskjóli 47 og 55 frá 29. maí 2020 til og með 26. júní 2020. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun vegna viðbyggingar er: 18,1 ferm., 48,9 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 105821 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010834