Breytingar - innveggir og stigar fjarlægðir o.fl.
Kárastígur 7 01.18.230.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Hadeel Ibrahim
Byggingarfulltrúi nr. 1079
18. ágúst, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta öllu innra skipulagi, setja nýja þakglugga og tröppur, lækka kjallaragólf viðbyggingar, hækka útveggi viðbyggingar án þess að breyta mænishæð og garður verður endurskipulagður við hús á lóð nr. 7 við Kárastíg.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 16. desember 2019, minnisblað hönnuðar dags. 29. júní 2020, uppmæling á núverandi húsi dags. 29. júní 2020, skýringamynd breytinga dags. 29. júní 2020 og bréf hönnuðar dags. 11. ágúst 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. janúar 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. janúar 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2020.
Stækkun: 7,6 ferm., 53,4 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101902 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024896